top of page

About Royal Clinic

Wellness & Advanced Care

 

Royal Clinic er heildræn vellíðunar- og fegrunarstofa þar sem nútímatækni, fagmennska og persónuleg þjónusta mætast.

Við leggjum áherslu á að styðja við heilsu, endurheimt og fegurð með meðferðum sem hjálpa líkama og taugakerfi að ná betra jafnvægi. Jafnframt bjóðum við upp á hágæða fegrunarþjónustu í rólegu, fallegu og nærandi umhverfi.

​

Heildræn vellíðan og áfallavinna

 

Við sérhæfum okkur í meðferðum sem styðja við:

Taugakerfisjafnvægi og streitulosun
Áfallavinnu og tilfinningalega úrvinnslu
Vinnu með undirmeðvitundina og rótgróin mynstur
Svefn, endurheimt og aukna orku


Blóðrás og sogæðaflæði
Vöðva- og stoðkerfi
Endurhæfingu og almenna vellíðan
Líkamsmótun og líkamsvitund

 

Með áfallamiðaðri nálgun og vinnu með undirmeðvitundina hjálpum við einstaklingum að vinna með streitu, tilfinningalegt álag og rótgróin viðbragðsmynstur. Áhersla er lögð á öryggi, mildi og persónulega nálgun með það að markmiði að styðja við aukið innra jafnvægi og betri líðan.

​

Neuromuscular Impulse Treatment

 

Meðal þjónustu okkar er Neuromuscular Impulse Treatment, heildræn meðferð sem virkjar tauga-, vöðva- og blóðrásarkerfi og hjálpar taugakerfinu að færast úr álagi yfir í ró og betra jafnvægi – eins konar „reset“ fyrir taugakerfið.

Meðferðin hefur reynst viðskiptavinum okkar vel til að styðja við:

Streitulosun og taugakerfisjafnvægi
Betri svefn og endurheimt
Aukna orku og almenna vellíðan
Einbeitingu og innri ró
Blóðrás og vöðvavirkni

Einstaklingar með ADHD-tengd einkenni hafa meðal annars lýst aukinni ró, betri einbeitingu og meira jafnvægi eftir meðferð.

Meðferðin er vellíðunarmeðferð og kemur ekki í stað greiningar eða læknismeðferðar við ADHD.

​

Líkamsmótun & LPG Endermologie®

 

Við bjóðum einnig upp á LPG Endermologie®, viðurkennda meðferð sem vinnur með bandvef, sogæðakerfi og blóðrás til að:

 

• Draga úr bjúg og vökvasöfnun
• Styðja við líkamsmótun
• Auka blóðrás og flæði
• Bæta áferð húðar

• Draga úr ásýnd appelsínuhúðar

 

Fegurð & sjálfsumhirða

 

Royal Clinic býður upp á fjölbreytta fegrunarþjónustu þar sem markmiðið er að hjálpa þér að líða vel og líta vel út.

Neglur
Snyrting og fegrunarmeðferðir
Hárgreiðsla og hárumhirða

​

Okkar sýn

 

Við trúum því að raunveruleg vellíðan verði til þegar líkami, hugur, taugakerfi, fegurð og sjálfsumhyggja vinna saman. Þess vegna sameinum við wellness, advanced care, áfallavinnu, biohacking og fegrunarþjónustu undir einu þaki.

​

Royal Clinic – þar sem vellíðan, endurheimt, biohacking og fegurð mætast.
bottom of page